Þórður Birgisson | Meðlimur frá 2022
Þórður hefur verið all-in frá fyrsta fundi og mætti strax á sinn fyrsta fulltrúaráðsfund á Siglufirði í október 2022. Á sínum öðrum fulltrúaráðsfundi á Egilsstöðum í febrúar 2023 var strax ljóst að hann væri kandídat í varaformanninn og fór svo að hann bauð sig fram í það embætti strax á næsta aðalfundi klúbbsins. Hann er skipulagður og skynsamur fyrir allan peninginn. Hann er lærður bifreiðavirki og fyrrum rallíkall. Ef það er eitthvað sem þú þarft álit á, þá er Þórður maðurinn.
Auðunn Ingi Ragnarsson | Meðlimur frá "2018"
Auðunn er sjálfstætt starfandi smiður og harðduglegur drengur. Hann kom fyrst til okkar 2018, þurfti að taka sér árs pásu, og er kominn aftur af fullum krafti.
Auðunn starfaði áður sem ritari klúbbsins til tveggja og hefur verið duglegur að sinna því þrátt fyrir að vera sjálfur í námi og í fullri vinnu. Auðunn er harðduglegur drengur og því augljós hágæðakostur til varaformanns klúbbsins.
Auðunn er ásamt öllu öðru alltaf tilbúinn að bjóða fram heimili sitt fyrir klúbbinn enda einstaklega góður gestgjafi.
Friðrik Þór Hjálmarsson | Meðlimur frá 2023
Tölvunjörður, úthverfis pabbi, grillmeistari klúbbsins og dáðadrengur.
Friðrik kom sem stormur í starfið 2023, afrekaði 100% mætingu og sankaði að sér ást allra meðlima (skilyrðislaust).
Friðrik bauð sig fram til ritara á sínum fyrsta aðalfundi A og uppskar embættið ásamt embætti vefmeistara. Friðrik sá sér ekki fært að mæta á þann tiltekna fund en mikilfenglegt orðspor hans innan klúbbsins orsakaði því að hann hlaut embættin með yfirburðum. Friðrik afþakkaði stöðu einræðisherra klúbbsins.
Friðrik er eini meðlimur í sögu klúbbsins til að barna (2x) og að lokum giftast afkvæmi gold member klúbbsins.
Þessi grein er ekki ritskoðuð af öðrum en vefmeistara.
Einar Gústaf Sverrisson | Meðlimur frá 2022
Einar er á yfirborðinu rólegur drengur en er lúmskur þegar þið kynnist honum. Hann tók við sem gjaldkeri árið 2023 og hefur uppskorið 7 glænýja BMW bifreiðar á þeim tíma. Því hugnast Einari ekki að embætti gjaldkera fari manna á milli í hans veru.
Hann er ekki mikið með frammíköll á fundum en hefur oftast eitthvað gott til málanna að leggja. Eldri bróðir Einars er í Rt-2 og hafa erlendir teiblarar ruglast á þeim bræðrum með skemmtilegum hætti.